Brúðkaup í Holte Kirke

Nú er brúðkaupið loksins yfirstaðið. Það hefur verið í nógu að snúast undanfarið, við að skipuleggja þetta allt saman og ganga frá pappírsvinnu við yfirvöld. En það var þess virði. Það finnast varla hamingjusamari hjón en Nina og Hans. Þau sváfu næstum ekki síðustu vikuna, vegna spennings.

Bryllup 013Hennar draumur var brúðkaup eins og krónprins Friðrik og prins Jóakim fengu. Svo Nina hafði langan slóða á kjólnum og auðvitað brúðarslör og brúðarmeyjar. Hans var í kjólfötum. Brúðkaupið var mjög hefðbundið að hennar ósk. Og allt tekið upp á vídeó svo hún geti horft á þetta allt sitt líf.

Veislan var haldin á Bregnerød Kro, sem er gömul krá frá 16. öld. Þetta var mjög hefðbundið danskt, þau fengu hjartatré og dönsuðu brúðarvalsinn. Því betur sluppu þau við, vegna fötlunar, að skríða undir borðið í hvert sinn sem gestirnir slógu í diskana. Það finnst mér mjög undarlegur siður. Brúðarkjóllinn gjöreyðileggst á þessu hnoði undir borðið.

Brúðhjónin og fjölskyldur beggja gistu svo á kránni á brúðarnóttina. Nina og Hans fengu auðvitað brúðarsvítuna. Það var ekki auga þurrt.

Gjafaborðið svignaði, og það er næstum ekki pláss fyrir þau heima hjá sér í augnablikinu. Það tekur tíma að finna pláss fyrir allar þessar gjafir. Það næsta sem er svo á dagskrá er auðvitað brúðkaupsferðin, sem verður til Rómar. Það á að vera mjög rómantísk ferð, með "candelight dinners" og svo framveigis. Mig er þegar farið að hlakka til að taka þátt í þessu með þeim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Yndislegt....og færð þú svo að fara til Rómar?  Í brúðkaupsferð ?

GOTT AÐ FINNA ÞIG AFTUR HÉRNA SIGGA MÍN.

Hólmdís Hjartardóttir, 9.9.2008 kl. 11:09

2 Smámynd: Sigríður Hulda Richardsdóttir

Já, ég er á leiðinni í mjög rómantíska brúðarferð til Rómar. Það verður örugglega eftirminnileg ferð.

Sigríður Hulda Richardsdóttir, 9.9.2008 kl. 11:58

3 identicon

Halló, Sigga! Gaman að finna þig hér. Bestu kveðjur frá mér og Jóni. Sjáumst, Guðrún.

Guðrún Björk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 01:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband