Mannréttindi barna
15.1.2009 | 12:27
Það er gott, að það er kominn úrskurður frá umboðsmanni barna um, að þau hafi rétt á því að tjá sig.
Íslendingar hafa skrifað undir mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna, svo auðvitað þurfa þeir að standa við það:Barnasáttmáli SÞ http://www.abotinn.is/barnaheill/barnasattmali1.html
12. gr.
1. Aðildarríki skulu tryggja barni sem myndað getur eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varða, og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska.
2. Vegna þessa skal barni einkum veitt tækifæri til að tjá sig við hverja þá málsmeðferð fyrir dómi eða stjórnvaldi sem barnið varðar, annaðhvort beint eða fyrir milligöngu talsmanns eða viðeigandi stofnunar, á þann hátt sem samræmist reglum í lögum um málsmeðferð.
13. gr.
1. Barn á rétt til að láta í ljós skoðanir sínar, og felur það í sér rétt til að leita, taka við og miðla hvers kyns vitneskju og hugmyndum, án tillits til landamæra, annaðhvort munnlega, skriflega eða á prenti, í formi lista eða eftir hvers kyns öðrum leiðum að vali þess.
2. Láta má rétt þennan sæta vissum takmörkunum, en þó aðeins að því marki sem mælt er fyrir í lögum og er nauðsynlegt
a) til þess að virða réttindi eða mannorð annarra, eða
b) til að gæta öryggis þjóðarinnar eða allsherjarreglu (ordre public), eða heilbrigðis almennings eða siðgæðis.
14. gr.
1. Aðildarríki skulu virða rétt barns til frjálsrar hugsunar, sannfæringar og trúar.
2. Aðildarríki skulu virða rétt og skyldur foreldra, og lögráðamanna, eftir því sem við á, til að veita barni leiðsögn við að beita rétti sínum á þann hátt sem samræmist vaxandi þroska þess.
3. Frelsi til að láta í ljós trú eða skoðun skal einungis háð þeim takmörkunum sem mælt er fyrir um í lögum og eru nauðsynlegar til að gæta öryggis almennings, allsherjarreglu, heilsu almennings eða siðgæðis, eða grundvallarréttinda og frelsis annarra
15. gr.
1. Aðildarríki viðurkenna rétt barns til að mynda félög með öðrum og koma saman með öðrum með friðsömum hætti.
2. Þessi réttindi skulu ekki háð öðrum takmörkunum en þeim sem settar eru í samræmi við lög og nauðsynlegar eru í lýðfrjálsu þjóðfélagi vegna öryggis þjóðarinnar eða almennings, allsherjarreglu (ordre public), verndunar heilbrigðis almennings eða siðgæðis eða verndunar réttinda og frelsis annarra.
16. gr.
1. Eigi má láta barn sæta gerræðislegum eða ólögmætum afskiptum af einkalífi þess, fjölskyldu, heimili eða bréfum, né ólögmætri árás á sæmd þess eða mannorð.
2. Barn á rétt á vernd laganna fyrir slíkum afskiptum og árásum.
Eiga að fá tækifæri til að tjá sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Mannréttindi, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Já ég las þetta í gær. Gott að fá þetta fram.
Kveðja
Hólmdís Hjartardóttir, 15.1.2009 kl. 12:29
Hún Dagný er bara skörungur sem á að fá að njóta sín..
Einhvern tíma var slagorð sem hjómaði eitthvað á þessa leið... Börn eru gullmolar -hlutverk fullorðinna er að fægja það og láta það njóta sín...
Svona finnst mér Dagný vera ... gullmoli sem þarf að fá að tjá sig ...því hún hefur mjög ákveðnar skoðanir.....
kveðja...
Berglind
Berglind Berghreinsdóttir, 24.1.2009 kl. 18:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.