Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
Detektivbyrån
29.6.2008 | 16:48
Þetta er þrælskemmtileg hljómsveit frá Svíþjóð.
Mér finnst E18 og Lyckens undulat sérlega góð lög. Þegar maður hefur heyrt lögin nokkrum sinnum, syngja þau í höfðinu á manni.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nafna mín í Ameríku
29.6.2008 | 08:14
Ég fékk e-mail um daginn frá Sigríði Richards. Það sýndi sig að sendandi var þeldökk stúlka í New York, ættuð frá Jamaika. Ég gapti af undrun.
Hún sagðist hafa orðið mjög undrandi þegar vinir hennar bentu henni á að það væri önnur kona á netinu með sama nafn. Hún hafði alltaf haldið að hún væri sú eina í heiminum með þetta nafn. Richards er algengt eftirnafn í Ameríku, en Sigríður mjög sjaldgæft.
Aðspurð hvaðan hennar nafn var komið, svaraði hún að eldri systir hennar hefði átt pennavinkonu í Þýskalandi, og foreldrum hennar hefði þótt nafnið sérkennilegt og fallegt. En ameríkanar eiga erfitt með að bera það fram: Sigi, Sig, Siggi, Sigi, Siri, See, Grid? Griddy, Cider, Siege. Hún er frekar þreytt á því, og það skil ég vel.
Ég get sagt það sama. Ég hef alltaf haldið sjálf að ég væri sú eina Sigríður Richards í heiminum. Það eru jú margar Sigríðar á Íslandi, en ekki margir menn sem heita Richard. Allavega var ég alltaf spurð þegar ég var yngri, hvort pabbi minn væri útlendingur og hvers vegna hann héti þessu nafni.
Jæja, en nú erum við báðar orðnar meðlimir í klúbbnum "the sisterhood of Sigrids" á Facebook. Þar sé ég að það eru Sigríðar út um allann heim. Margar ættaðar frá Þýskalandi eða Noregi, og flestar vita ekki hvaðan nafnið er komið. Þær eru í öllum löndum, Rúmeníu, Ástralíu, Afríku, Ameríku ofl. Og fæstar frá Íslandi. Mjög áhugaverð pæling.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Flugferðum til Íslands fækkar
27.6.2008 | 16:42
Iceland Express fækkar ferðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Garðurinn í júní
27.6.2008 | 08:51
Ég var að vinna í garðinum í gær. Það er alveg ótrúlegt hvað allt vex hratt í augnablikinu, þrátt fyrir að það var hitabylgja í vor í 6 vikur, 30 stiga hiti og engin rigning. Maður hefur varla við að viðhalda blómabeðunum. Svo er bannað að vökva, því það þarf að spara vatnið. Ég er nú samt að stelast til að vökva sumarblómin á kvöldin, þau þola ekki svona þurrka.
Ég elska ber, svo ég er með jarðarber, ribsber, græn og blá vínber, amerísk bláber, brómber, hindber og tytteber. Jarðarberin eru byrjuð að verða fullþroska, svo nú keppist ég við fuglana að ná þeim. Skrýtið að það er ekki eins mikið af bláberjum og í fyrra. Af hverju ætli það stafi? Það er líka minna af eplum en í fyrra, en meira af perum. Undarlegt.
Ég uppgötvaði 5 "dræbersnegle" - þeir fyrstu í ár. Ég hef fundið fullt af skógarsniglum og venjulegum kuðungasniglum, sem eru líka ógeðslegir. Sniglarnir eru óvinir mínir númer eitt. Þeir fá allir að láta lífið. Nú þarf ég að byrja sniglaveiðar á kvöldin með vasljós, eins og allir hinir. Öll önnur dýr eru velkomin á lóðina mína. Það búa íkornar í gamla grenitrénu, líka skógardúfur og ýmsir smáfuglar. Broddgeltirnir eru mjög velkomnir, þeir éta unga snigla og eru bráðnauðsynlegir í garðinum, svo ég gef þeim vatn að drekka daglega.
Furutréð á lóð nágranna míns hefur kastað svo mörgum könglum í rokinu um daginn, að ég fyllti 2 stóra plastapoka. Þetta eru fallegir furukönglar, það er eiginlega synd að henda þeim. Kannske er einhver sem getur notað þá, ef til vill einhver frístundaklúbbur eða slíkt. Það er tilvalið að nota þá í jólaskreytingar. Ég þarf að athuga það.
Ég var að ákveða að skreppa til Madeira í viku eða svo. Það er jú blómaeyja og ég hef ekki verið þar áður. Það hlýtur að vera fullt af sjaldgæfum plöntum þar, og möguleiki á að kaupa fræ. Ég er þegar farin að hlakka til.
Íslenska krónan á útsölu
23.6.2008 | 12:05
Það marg borgar sig að ferðast til Íslands í augnablikinu.
Hér í Kaupmannahöfn kosta 100 ísl. krónur 4 danskar krónur!!! Ég þarf að drífa mig heim, þar er ég milljarðamæringur.
Evran yfir 130 krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Til hamingju með afmælið Gússý
23.6.2008 | 11:54
Sumarfrí
23.6.2008 | 10:32
Það er ansi langt síðan ég hef bloggað hérna á Mbl. Ég hef verið meira upptekin af MySpace út af tónlistinni þar.
En nú er ég komin í sumarfrí, og ætla að nota hluta af því til þess að hanga í tölvunni þegar veðrið er ekki til þess að vera í garðinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)