Botninum náð?
3.10.2008 | 15:53
Vilhjálmur telur botninum náð!
Hefur hann litið til útlanda?
Ástandið á Íslandi er tvíþætt og þess vegna enn verra, en úti í heimi.
Annars vegar er það umframeyðsla og útrás Íslendinga síðustu ár. Það hefur verið altalað erlendis, í a.m.k 2 ár, að íslensk stjórnvöld þyrftu að gera eitthvað við því. Það hefur ekki gerst. Það er eins og ríkisstjórnin hafi sofið þyrnirósarsvefni þar til í síðustu viku, þegar alheimskreppan skall virkilega á.
Þjóðin hefur verið haldin spilafíkn, og verið á allsherjar innkaupafylleríi. Á sama tíma eru það lífeyrissjóðir landsmanna sem er ábyrgðin á bak við erlend lán ríkissjóðs og útrásarfyrirtækja. Sú lífeyriseign hlýtur að vera í hættu núna. Hræðileg hugsun fyrir venjulegt fólk.
Hins vegar er skollin á alheimskreppa, og þau vandræði eru fyrir utan valdsvið Vilhjálms Egilssonar. Ég held að hann ætti að láta vera, að tjá sig um hluti sem hann hefur engin áhrif á.
Eða er hann kannski spámaður?
Þá hefði hann átt að getað spáð fyrir þeirri kreppu sem við erum í núna.
Telur botninum náð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:54 | Facebook
Athugasemdir
Þeir eru búnir að segja til skiptis að botninum sé náð......allt þetta ár.
Þjóðin er orðin þunglynd og farin að hamstra matvæli.
Kveðja
Hólmdís Hjartardóttir, 3.10.2008 kl. 16:26
Þegar Danir heyra um kreppu eða verkfall, þá kaupa allir ger. Og ger er uppselt um leið.
Þeir muna ennþá olíukreppuna á 70. áratugnum, sem þeir kalla kartöflukúrinn, og fara strax að búa sig undir að baka brauð og finna kartöflurétti.
Mér hefur alltaf fundist þetta fyndið, en nú er það raunveruleikinn, allavega í nokkurn tíma. Eins gott að byrja strax að spara.
Kær kveðja til þín Hólmdís
Sigríður Hulda Richardsdóttir, 3.10.2008 kl. 16:43
Kannski maður geri kartöflukonfekt fyrir jólin. Mannstu ekki eftir því? Við þolum alveg minni innflutning um tíma, verra með lánin. Ég held ég sleppi sæmilega enda ekki með nein ofurlán.
Hólmdís Hjartardóttir, 3.10.2008 kl. 17:39
Það er gott Hólmdís, að þú ert ekki skuldsett.
Það eina rétta fyrir almenning núna, er að draga úr neyslu eins og hægt er og greiða niður skuldir. Sem er mjög erfitt, þegar skuldirnar vaxa hraðar en allt annað.
Sigríður Hulda Richardsdóttir, 5.10.2008 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.